| Verkunarstöðin í Skóghlíð - heilbrigðisstimplun! |
|
Verkunarstöð fyrir hreindýrakjöt er starfrækt á einum stað á Austurlandi. Þar sem hægt er að fá kjötið heilbrigðisskoðað og stimplað af dýralækni. Heilbrigðisstimplun kjöts. Kjöt sem á að selja ber samkvæmt lögum að heilbrigðisstimpla. Ein verkunarstöð þar sem menn geta fengið kjötið heilbrigðisstimplað hefur fengið starfsleyfi og er hún staðsett að Skóghlíð á Fljótsdalshéraði. Hafa skal samband í s. 471-1904 til að fá nánari upplýsingar. Til að kjöt fáist heilbrigðisstimplað verður að koma með dýrið óflegið á stimplunarstað.
|
| |
|
|
Skrifað 14.07.10 |
|