| 31. júlí 2009 |
|
Þokan lá frekar lágt yfir Austurlandi í nótt en nú er heldur að létta til. Tarfaveiðimenn eru víða í startholum og sumir sem ætluðu að vera búnir að veiða fyrir helgina og trúlega komast heim í faðm fjölskyldunnar. Svona eru nú veiðar það gengur ekki allt upp og spilar veðrið þar oft stóra rullu. Nú er farnir á stað eftirtaldir leiðsögumenn með skyttur. Magnús Karlsson farin á stað á sv. 6, Eiríkur farinn á sv. 1 og einnig Reimar. Emil fór á sv. 2. og Siggi Aðalsteins fer á stað einnig á sv. 2 er þokan lyftir sér. Sævar bjóst við að fara á sv 5 ef þokunni létti nægjanlega mikið og einnig Sigvaldi á sv. 7 og Sigurður Eymundss á sv. 8. Á morgun þann 1. ágúst má svo byrja að fella kýrnar.
|
| |
Tveir tarfar felldir á sv. 2 í Fellum og einn á sv. 1 norðan við Smjörfjöll. Sumir leiðsögumenn hættu við að fara vegna þoku.
 |
|
Skrifað 31.07.09 |
|