| 5. ágúst 2009 (myndir nýtt) |
|
Búið að rigna mikið á Héraði í nótt og undir morgun, en nú undir hádegi er þokan að láta undan og farið að glitta í sólina annað slagið. Ef skoðaðar eru vefmyndavélar á Fjörðunum þá sést að þar er svarta þoka. Margir veiðimenn farnir með leiðsögumönnum sínum á svæði 2. Eiríkur Skjaldar með einn mann í tarf, Ómar með tvo menn í tarfa, Danni með tvo menn, Siggi Aðalst. með tvo menn í tarf og kýr, Össur með þrjá í kýr, Jón Hávarður með tvo í kýr, Ástvaldur með einn í kýr, Tóti Borgars með einn í tarf. Ragnar Arnars með tvo í kýr. Reimar fer með tvo menn í tarfa á sv.1
|
| |
|
Helgi Hallgrímsson við tarf sinn sem felldur var við Gilsárvötn á sv.2 með Tikka 308. Leiðsögumaður Danni á Vaðbrekku.
|
|
Þokkalega gekk að veiða á svæði 2 en sumir hópar voru styggir og mest var því veitt úr einum hópi nærri Gilsárvötnum. Þar var tarfahópur með um 40 törfum og einnig um 90 kýr. Felldir voru þar þrír tarfar og tveir tarfar voru svo felldir nærri Stórudæld. Þar voru einnig felldar 8 kýr og ein nærri Fellakofa. Einn tarfur var felldur á svæði 3 utan við Hól en þangað fór Jón Sigmar með einn veiðimann síðdegis. Leitað var að törfum á sv. 1 en þeim tókst að dyljast leiðsögumönnum og þeirra veiðimönnum.
 | |
|
Sigurbjörn Elíasson við 84 kg tarf sinn felldan við Gilsárvötn. Felldur með Sako hunter 75 cal 308 og 123 gr kúlu á 119 m færi. Leiðsögumaður Eiríkur Skjaldar.
|
|
 |
|
Skrifað 05.08.09 |
|