| 6. ágúst 2009 |
|
Mikið er um að vera á svæði 2 þangað eru farnir eftirtaldir leiðsögumenn með veiðimenn sem ætla að fella kýr. Emil með einn, Ragnar Arnars. með þrjá, Einar Eiríks. með einn, Siggi Aðalsteins með tvo, Guðmundur Péturss. með einn, Össur með þrjá menn, Alli í Klausturseli með tvo menn. Ómar fer með einn tarfamann og Gunnar Gutt með annan. Reimar ætlaði með tvo menn á sv 1 og Eiríkur Skjaldar einnig með tvo. Stefán Kristmanns fer með einn á sv. 3 í kýr og Ólafur Örn með einn í kýr á sv. 4. Ástvaldur ætlar á sv. 5 með einn tarfamann ef þokunni léttir.
|
| |
Á svæði 2 voru felldar 7 kýr en mest var fellt úr einum hóp sem var kringum Sauðabanalækinn og út undir Vegufs. Um 100 dýra hjörð. Tarfahópur, um 30 tarfar,var í Fljótsdalsbrúnum og voru úr honum felldir tveir tarfar. Tveir tarfar voru svo felldir í Fellaheiði nærri Þorkelsmel. Þar var lítill tarfahópur en stór kúahjörð þar fyrir innan. Ekki fellt á Fjarðasvæðunum þar var lítið sem ekkert skyggni vegna þoku. Veður var þokkalegt en þó gekk á með miklum rigningarskúrum á Fljótsdalsheiðinni.
 |
|
Skrifað 06.08.09 |
|