| 8. ágúst 2009 (myndir) |
|
Nú er mjö gott veiðiveður á Héraði og þokkalegt á næstu Fjarðasvæðunum en þokufyllra eftir því sem sunnar dregur. Magir farnir til veiða. Á svæði 2 eru: Reimar, Einar E., Kolbeinn Ara., Siggi Aðalst, Siggi Óla, Ragnar Arnars, Árni Vald, Þorsteinn Jóh. með samtals 14 skyttur sem ætla að fella kýr. Ómar með einn mann í tarf. Á svæði 3 fóru Skúli Sveins og Stefán Krism. með þrjá menn í kýr og Jón Egill með einn í tarf. Sævar og Andrés fara með fjóra menn í tarfa á sv.5 en þar hefur þokan verið að stíða mönnum. Óli Örn fer með tvo menn í kýr á sv. 4. Jónas Bjarki fer með tarfamann á sv 6 og Rúnar með einn mann á svæði 7 í kýr. Siggi á Borg ætlar á sv. 8 ef birtir til með tvo menn í kýr.
|
| |
|
Bragi Valur Emilsson við tarf sinn felldan á sv.3 í Hrævardal í um 700 m h y.s. Tarfurinn vigtaði 111 kíló. Leiðsögumaður: Jón Egill Sveinsson.
|
|
Veiðar gengu vel í gær. Dýrin á svæði 2 voru öll á leið inn heiðina, fellt var við Gilsárvötn og utan við Bessastaðaá. Alls voru felldar 16 kýr og 1 tarfur. Á svæði 3 var felldur einn tarfur í Loðmundarfirði og einnig voru felldar þrjár kýr á svæði 3. Fjórir tarfar voru felldir á svæði 5. Einn tarfur var felldur á svæði 6 og ein kýr á sv. 7. Á svæði 8 voru felldar 3 kýr.
 | |
Ágúst Kristjánsson við hreinkú sína fellda í Svörtukrókum á sv. 2. Riffill: Sako 85 Hunter 6,5x55 ásamt Nicco Stirling Night-eater og skotfæri 140 grain Winchester Super X. Leiðsögumaður: Ragnar Arnarsson
 | |
|
Jens Magnússon við kú sem hann felldi á Fljótsdalsheiði.Leiðsögn Sigurður Ólafsson.
|
|
 | |
|
Pálmi A. Franken og Júlíus Sigurþórsson við tarf sem Pálmi fellid á sv. 6. Tarfurinn var 95 kg og var færið 250 m, vopn Tikka T3 Tactical cal. 300 win. mag.. Leiðsögn: Jónas Bjarki.
|
|
 |
|
Skrifað 08.08.09 |
|