| 9. ágúst 2009 ( mynd nýtt) |
|
Mjög gott veður á svæði 1 og 2 og sennilega þokkalegt á öðrum svæðum. Á svæði 2 eru farnir: Siggi Aðalsteins, Reimar, og Danni með samtals 5 menn í kýr. Siggi Óla fer með þrjá menn í tarfa. Snæbjörn ætlar á sv. 1 með tvo tarfamenn. Skúli Sveins fer með einn á sv 3 í kýr. Stebbi Kristmanns fer með einn tarfamann á svæði 4. Sævar fer með einn mann í kýr á svæði 5 og Þorsteinn Aðalst með tvo tarfamenn. Helgi Jenss. fer með mann í kýr á svæði 7 og Albert með einn í tarf. Siggi Eymunds fer með einn mann í kýr á sv 8 og Stefán Helgi með tvo menn í kýr og einn tarfamann.
|
| |
|
Bráðin dregin að slóð. ,,Gorfólk" Lovísa Ósk og Orri með kúna í drætti og skyttan Ólafur Steingrímsson gengur á eftir. Leiðsögumaður: Emil Björnsson.
|
|
Vel gekk að veiða í gær - enda veður gott og nokkuð bjart á flestum veiðisvæðum en þó þokuslæðingur eftir því sem sunnar dró. Á svæði 1 voru felldir tveir tarfar en þar fannst tarfahjörð utan við Sandfell. Ein kýr var felld á svæði 1 inn á Brúardölum. Á svæði 2 voru felldir fjórir tarfar og fjórar kýr og voru dýrin komin inn með Gilsárvötnum og inn undir Laugafell. Á svæði 3 var felld ein kýr í Loðmundarfirði. Einn tarfur var felldur á sv. 4 í Seyðisfirði. Á svæði 5 var felld ein kýr inn af Eskifirði og tarfar í Reyðarfirði í Áreyjarlandi. Á svæði 7 var felldur einn tarfur í Flugustaðadal og ein kýr í Hofsdal. Á svæði 8 var felld ein kýr á Loðnahjalla.
 |
|
Skrifað 09.08.09 |
|