| 11. ágúst 2009 (myndir nýtt) |
|
Hægviðri á Austurlandi. Logn og þokuslæðingur víða, meiri þoka á Fjörðunum. Á svæði 2 fara Magnús Karls. með einn mann í tarf, Kolbeinn Ara með tvo menn í tarf og kú. Ragnar Ólafss. með tvo í kýr, Emil með tvo í kýr og Siggi með einn í kú. Reimar og Snæbjörn ætluðu að leita áfram með sína tarfamenn á sv. 1 ef þokunni létti. Sævar fer með tvo menn í kýr á sv. 5 og Friðrik með einn. Helgi Jens. fer með tvo tarfamenn á svæði 7 í tarfa, Stefán Gunnars með einn í tarf og Siggi á Borg með einn í tarf. Siggi Eymunds fer á svæði 8 með þrjá kýr og Stefán Helgi með einn í kú og tvo í tarf. Sigurgeir fór með tvo tarfamenn á sv. 4.
|
| |
Besta veiðiveðrið var á svæði 1 og 2. Á öðrum svæðum var erfitt að stunda veiðar vegna þoku sem lá niðri í miðjum hlíðum og neðar. Á svæði 1 voru felldir tveir tarfar. Á svæði 2 voru felldir þrír tarfar við Kálfafell og Þrælaháls. Á svæði 2 voru einnig felldar kýr 6 kýr norðan við Urginn. Á svæði 7 var felldur einn tarfur í Geithellnadal og tveir á sv. 8 í Hoffellsdal.
 | |
Hulda Ólafsdóttir við hreinkú sem hún felldi norðan við Urg á svæði 2. Leiðsögumaður: Emil Björnsson
 |
|
Skrifað 11.08.09 |
|