| 13. ágúst 2009 (myndir nýtt) |
|
Hjá sumum er 13 óhappatala en vonandi verður þrettándi ágúst happadagur fyrir þá sem stefna á að fella hreindýr í dag. Minni þoka í lofti og ætti að vera betra skyggni á flestum veiðisvæðum á Fjörðunum heldur en undanfarna daga. Óskar Bjarna og Siggi Aðalsteins ætla á svæði 1 með tvo menn hvor í tarfa. Á svæði 2 fara eftirtaldir leiðsögum. Eiríkur Skjaldar með einn í kú, Snæbjörn með tvo í kýr, Ómar með einn í tarf, Rúnar með tvo í tarfa og einn í kú, Þórir með einn í kú, Þórhallur Borgars með einn í kú og Guðmundur í Bessastaðagerði með tvo í kýr. Einar Axelss ætlar með einn í kú á sv. 6. Á svæði 7 fer Þorri með tvo í kýr og Albert með einn. Stefán Gunnars fer með einn á sv 8 í tarf. Óli Örn fer með einn í tarf á sv. 4. Sævar fer með tvo menn í kýr á svæði 5. Sigurgeir fer með einn mann á sv. 4 í tarf. Stebbi Kristmanns. og Skúli fara með tvo menn í kýr á sv 3.
|
| |
|
Atli Már Markússon við hreinkú sem hann felldi við Digravörðudrag í Klausturselsheiði, felld með Win.243 á um 150 metra færi. Kýrin var geld um 5-6 vetra og vóg 38 kg. Leiðsögumaður: Eiríkur Skjaldarson.
|
|
Ekki náðu allir að veiða þannig að 13. ágúst var þeim óhappadagur. Á svæði 2 voru felldar 5 kýr og 5 tarfar. Stór hjörð var enn innan við Kárahnjúkaveg um 300 kýr. Tarfarnir voru veiddir við Þórfellið og í Bæjarflóa. Tvær um 100 dýra hjarðir voru einnig í Klausturselsheiði og þar voru felldar tvær af kúnum. Dýrin sem voru í Þórfelli og við Vegufs stefndu út með Bessastaðavötnum undir kvöldið. Leitað var að törfunum á sv. 1 en þeir fundust ekki. Tvær kýr voru felldar á sv.7 við Þrándará, einn tarfur á sv. 7 Lónsheiði. Tveir tarfar voru felldir á svæði 8 og ein kýr. Ein kýr á sv. 6 var felld á skörunarsvæðinu austan við Jökulsá í Fljótsd. Einn tarfur var felldur á sv. 6 í Breiðdal. Leitað var að törfum á sv. 4 á Fjarðarheiði en þeir fundust ekki. Þokan gerði mönnum einnig erfitt fyrir á svæð 5 og þar var ekkert fellt. Leitað var á svæði 3 að kúm en fundu menn þær ekki.
 | |
Páll Rúnar Pálsson við tarf sinn felldan í Blágilsbotnum á veiðisvæði 8. Leiðsögumaður: Stefán Gunnarsson á Blábjörgum.
 |
|
Skrifað 13.08.09 |
|