| 14. ágúst 2009 |
|
Þokan lá neðarlega á veiðisvæðunum í morgun sennilega bjartast á syðstu svæðunum. Nú er heldur að létta til þegar kl. er orðinn 10:00. Margir ætla sér að veiða í dag en á sumum svæðum var útlitið ekki gott í morgun vegna þess hve þokan lá neðarlega. Á svæði 2 eru farnir með veiðimenn í kýr: Tóti Borgars, Kolbeinn Ara, Hafliði Hjarðar, Ómar, Reimar og Snæbjörn, samtals með 8 menn. Óskar Bjarna, Siggi Aðalsteins, og Helgi Jens fara með 5 tarfamenn á svæði 2. Ólafur Örn ætlaði að freista þess að finna tarfahópinn á sv. 1 með einn mann. Á svæði 5 fara Sævar og Páll Leifsson með 5 menn samtals og Þórir með einn, allir þessir menn ætla að fella kýr. Á svæði 7 fer Albert með tvo í kýr og Guðm. Valur með einn í tarf. Stefán Helgi ætlar með þrjá á svæði 8 í kýr og Skúli Ben. með tvo.
|
| |
Misjafnlega vel gekk að veiða. Á svæði 2 voru felldar 10 kýr, flestar í Hafursfellinu. Þar var um 300 dýra hjörð. Þrír tarfar voru felldir á svæði 2 einn þeirra út við Hengifossvatn en þar var um 70 dýra hjörð. Tveir tarfar voru felldir á svæði 1 vestan við Svartfell úr 150 dýra hjörð. Ekkert náðist á sv 3. og 5. enda þokan þar að trufla menn. Tvær kýr náðust á sv. 7 í Flugustaðadal og 5 kýr á svæði 8.
 |
|
Skrifað 14.08.09 |
|