| 24. ágúst 2009 |
|
Rólegt yfir hreindýraveiðimönnum og leiðsögumönnum þeirra í dag. Í nótt og fram undir morgun var ausandi rigningarveður á Austurlandi. Þoka er enn víða á veiðisvæðum. Menn stefna til veiða á sv. 2 ef að léttir til og styttir upp. Eftirtaldir fara á svæði 2: Benni Óla með tvo í kýr, Stefán Geir með tvo í kýr, Siggi Aðalsteins með einn í kú, Snæbjörn með tvo í kýr, Ómar með tvo í kýr, Alli með þrjá í kýr, Gunnar Gutt með einn í kýr, Eiríkur með einn í kú. Helgi Jenss með tvo í tarfa á svæði 1.
|
| |
Frekar erfiðlega gekk að veiða dýrin voru á erfiðum stöðum. Felldar voru fjórar kýr á Snæfellssvæðinu og þrjár í Fellaheiði. Mikið af dýrum heldur sig nú á svæðinu kringum Álftavatnshæðir og þar fyrir utan.
 |
|
Skrifað 24.08.09 |
|