| 25. ágúst 2009 |
|
Hér kemur loks byrjun á veiðifréttum dagsins. Eftirtaldir leiðsögumenn fóru með veiðimenn sína á svæði 2 í kýr. Árni Jónss með þrjá, Ómar með þrjá, Benni Óla með tvo, Ólafur Gunnar með tvo, Alli með tvo, Siggi Aðalsteins með tvo, Einar Axelsson með tvo, Björn Ingvarss með tvo, Emil með einn, Stefán Geir með tvo, Vignir Jón með tvo, Tóti Borgars með einn, Eiríkur með tvo og Danni með einn í kú og annan í tarf, Guðmundur Pétursson með einn í tarf.. Á svæði 1 fór Ólafur Örn með einn í tarf og Pétur í Teigi með einn í kú og annan í tarf. Á svæði 6 fór Magnús Karlsson með tvo menn í tarfa. Á svæði fór Guðmundur á Þvottá með einn í kú og Albert með einn í kú. Veðrið á Héraði er hæg austanátt og gengur á með skúrum. Hjarðirnar halda sig í Fellabrúnum frá Ormarsstaðaá og útundir Sandvatn.
|
| |
Vel gekk að veiða þar sem veiðiveður var. Felldar voru 26 kýr á svæði 2 í Fellabrúnum á svæðinu meðfram Ormarsstaðaá út undir Sandvatn. Tveir tarfar voru felldir á sv. 2. Á svæði 6 voru felldir þrír tarfar í Skriðdal. Annars staðar voru menn ekki á veiðum enda þoka á Fjörðunum.
 |
|
Skrifað 25.08.09 |
|