| 26. ágúst 2009 |
|
Mjög gott veiðiveður á svæðum 1 og 2. Þangað fara eftirtaldir leiðsögumenn með veiðimenn í dag í kýr: Eiríkur Skjaldar með einn, Siggi Aðalsteins með þrjá, Siggi Óla með einn, Bjarni í Hjarðarhlíð með þrjá, Tóti Borgars með einn, Helgi Jensson með tvo, Skúli Sveins með einn, Einar Axelsson með einn, Snæbjörn með einn, Stefán Geir með einn. Ómar með einn í kýr og annan í tarf. Á svæði 1 fara Reimar með einn í tarf og Ólafur Örn með einn í tarf. Sævar og Sigurgeir fara á sv.5 ef þokunni léttir. Á svæði 7 fer Guðmundur Valur með tvo í tarfa. Á svæði 8 fer Skúli Ben með þrjá í kýr.
|
| |
Vel gekk að fella á sv. 1 og 2. Á Fellaheiðinni voru felldar 14 kýr og einn tarfur, á svæðinu frá Þorkelsmel út undir Sandvatn. Á svæði 1 voru felldir tveir tarfar inn af Laxárdalshnjúk. Á svæði 7 var felldur einn tarfur í Starfmýrardal. Þoka var á öllum svæðum nema 1 og 2.
 |
|
Skrifað 26.08.09 |
|