| 27. ágúst 2009 |
|
Vegna tölvuvandamála tókst ekki að skrá þessar upplýsingar inn í morgun. Fyrst í morgun var sæmilegt veður á svæðum 1 og 2 en stutt í þokuna. Einnig var þoka á öðrum veiðisvæðum og fór að rigna seinni part dags. Nokkuð margir leiðsögumenn reyndu að fara á stað í morgun á svæði 1 og 2. Eftirtaldir fóru með veiðimenn í kýr. Eiríkur Skjaldar, Gunnar Gutt, Bjarni Bergþórs, Sigurgeir og Danni. Pétur í Teigi fór með mann í tarf á svæði 1. Á svæði 2 lagðist þokan yfir fyrir hádegi þar sem hreindýrin héldu sig yst í Fellaheiði. Nokkuð bjart var á svæðum 7 og 8. Á svæði 7 fóru Ómar með tvo í kýr, Stefán Gunnars með einn í tarf, Guðmundur á Þvottá með einn í tarf. Guðmundur Valur með tvo í tarf, Þorri með þrjá í kýr, Sigvaldi með þrjá í kýr og Albert og Helgi einnig með menn í kýr. Skúli Ben með þrjá menn í kýr á svæði 8 og Siggi Eymunds með einn í tarf.
|
| |
Ein kýr felld á svæði 2 og einn tarfur á svæði 1. Komnar fréttir um 1 tarf felldan á svæði 7 og 6 kýr. Kýrnar felldar í Geithellnadal. Á svæði 8 eru komnar fréttir um einn felldan tarf og tvær kýr. Einn tarfur og tvær kýr voru felld á svæði 5 á Eskifjarðarheiði.
 |
|
Skrifað 27.08.09 |
|