| 28. ágúst 2009 |
|
Nú er skásta veiðiveðrið á syðstu svæðunum en rigning og þoka á Héraði á svæðum 1 og 2. Heldur virðist samt veðrið ætla að lagast er líður á dag. Menn stefna ótrauðir til veiða þrátt fyrir votviðrið. Á svæði 1 fer Eiríkur Skjaldar með tvo menn í kú og tarf. Pétur í Teigi fer með einn mann í tarf á sv. 1. Á svæði 2 fer Alli með þrjá í kýr, Stefán Geir með tvo menn í kýr og einn í tarf, Snæbjörn með einn í kú, Jón Hávarður með tvo í kýr, Einar Axelsson með þrjá menn í kýr, Danni með tvo í kýr, Ómar með einn í kú, Siggi Aðalsteins með einn í tarf, Óskar Bjarna með þrjá í kýr, Magnús Karlsson með þrjá í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo menn í kýr, Sævar með tvo menn í kýr og Óli Gunnar með einn í tarf. Á svæði 7 fer Þorri með þrjá menn og Stefán Gunnarsson með tvo. Skúli Ben fer með þrjá menn í kýr á svæði 8, Stefán Helgi með tvo menn í kýr á sv. 8, Sigurður Eymundsson með þrjá menn í kýr á svæði 8 og Siggi á Borg með einn í tarf.
|
| |
Þokkalega gekk að veiða á svæði 2 voru dýrin í Jökuldalsbrúnum frá Giljum og inn undir Smáragrund. Á því svæði voru felldar 13 kýr. Tveir tarfar voru felldir á svæði 1. Á svæði fimm var felldur einn tarfur í Sandvík. Á svæði 7 voru felldar tvær kýr. Á svæði 8 voru felldar 6 kýr og tveir tarfar.
 |
|
Skrifað 28.08.09 |
|