| 30. ágúst 2009 |
|
Það líður að lokum ágústmánaðar. Enn er eftir að fella mörg hreindýr af úhlutuðum kvóta þannig að veðrið þarf að verða hagstætt til að menn nái sínum dýrum. Nú verður að nota vel alla þá daga sem eftir eru. Í dag eru eftirtaldir leiðsögumenn á svæði 1: Eiríkur Skjaldar með tvo menn í tarfa, Tóti Borgars með tvo í tarfa og einn í kýr. Á svæði 2 eru eftirtaldir: Siggi Óla með þrjá í kýr, Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr, Bjarni Bergþórss. með þrjá í kýr, Reimar með tvo í kýr, Ómar með einn í kú, Einar Eiríks með einn í kú, Einar Axelss með tvo í kýr og Guðmundur Péturss með einn í kú. Á svæði 3 fer Dagbjartur með einn kú og Jón Sigmar með annan. Á svæði 5 fer Sigurgeir með þrjá menn í kýr. Á svæði 7 fer Jónas Bjarki með einn í tarf, Guðmundur Valur með þrjá í kýr og Ragnar á Bragðavöllum með einn í kú, Sigurgeir með tvo í kýr. Stefán Gunnarsson fer með tvo menn á svæði 8 í kú og tarf, Skúli Ben með einn í kú og annan í tarf á sv 8 og Siggi á Borg með einn í tarf. Halldór ætlar með þrjá í tarfa á svæði 9.
|
| |
Vel veiddist. Á svæði 2 voru fellar 9 kýr og tveir tarfar. Kýrnar felldar í Merkisheiði og ofan við Hnefilsdal. Á svæði 1 voru felldir 3 tarfar í Sunnudal. Á svæði 5 fundu menn ekki kúahópana en menn komu úr Sandvík með tvo tarfa sem felldir voru þar kvöldið áður út undir Gerpi. Á svæði 7 var felldur einn tarfur í Hofsdal og tveir tarfar milli Fossárdals og Hamarsdals. Tvær kýr felldar á Melrakkanesafrétt og ein inn í Bratthálsi. Á svæði 8 voru felldir þrír tarfar og tvær kýr. Einn tarfurinn í Nyrðri Lambatungum. Á svæði 9 var felldur fyrsti tarfurinn inn af Birnudal.
 |
|
Skrifað 30.08.09 |
|