| 31. ágúst 2009 |
|
Síðasti dagur ágústmánaðar runninn upp. Enn er eftir að fella mikið af þeim hreindýrum sem leyfi hafa verið gefin út fyrir. Veður er þokkalegt til veiða á flestum svæðum nú í dag en þó er þoka og rigning að trufla menn á sv. 1 og 2 og 3. Menn halda ótrauðir á veiðar. Á svæði 1 fer Danni með tvær skyttur í tarf og kú, Eiríkur Skjaldar með einn í tarf. Á svæði 2 eru farnir Ómar með tvo í kýr, Reimar með þrjá í kýr, Emil með þrjá í kýr, Hafliði með einn í tarf og einn í kú, Tóti með einn í kú og Stefán Geir með tvo í tarfa og einn í kú. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með einn í kú og Sigurður Eymundsson með einn í tarf.
|
| |
Þrátt fyrir frekar risjótt veður veiddist vel. Á svæði 2 voru hjarðirnar í kringum Villingafell, í Merkisheiði, við Hneflukvíslar og fyrir ofan Húsárdal. Margar hjarðir á þessum slóðum. Einnig sást hjörð utan við Hneflu sem stefndi út fyrir ofan Smáragrund. Á svæði 2 voru felldar 12 kýr og þrír tarfar. Á svæði 5 voru felldar fjórar kýr og einn tarfur í Vöðlavík. Þar var um 50 dýra hjörð í Húsadal og Tregadal. Tveir tarfar felldir á svæði 7- annar þeirra í Búlandsdal og á svæði 7 voru einnig felldar tvær kýr á Starmýrardal. Á svæði 8 var felld ein kýr á Loðnahjalla og einn tarfur var einnig felldur á sv. 8.
 |
|
Skrifað 31.08.09 |
|