| 1. sept. 2009 |
|
Þá eru 15 dagar eftir af veiðitímabilinu. Eftir daginn í dag kemur í ljós hver staðan er miðað við tímabilið í fyrra. Þoka og rigning var á veiðisvæðum 1 og 2 í morgun en hefur birt nú um hádegið. Á svæði 1 fer Eiríkur með einn mann í tarf og Snæbjörn með tvo menn í tarfa. Á svæði 2 fara Siggi Aðalsteins með einn í kýr, Óskar með einn í tarf, Danni með einn í tarf, Ómar með einn í tarf, Tóti með einn í tarf og annan í kú, Alli með tvo í kýr, Stefán Geir með einn í kú og Hafliði Hjarðar með tvo í kýr. Á svæði 3 fer Jón Egill með einn í tarf. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í kýr, Sævar með tvo í kýr, Óli Gunnar með einn í kýr og Þorsteinn Aðalsteins með einn í tarf.Á svæði 8 fer Stefán Gunnarss með tvo í kýr, Stefán Helgi með þrjá í kýr og Siggi Eymunds með þrjá í kýr. Jónas Bjarki fer með einn mann á sv. 6 í tarf. Ekkert að frétta af öðrum svæðum.
|
| |
Einn tarfur var felldur á sv. 1 út með Hofsá. Á svæði 2 voru dýrin á sömu slóðum og í gær. Felldar voru 6 kýr og 3 tarfar fyrir ofan Hnefilsdal og Mælivelli. Einn tarfur var felldur í Fellum. 4 kýr voru felldar á svæði 5 og 1 tarfur - allt í Vöðlavík. Einn tarfur felldur á svæði 6 fyrir ofan Skriðu í Breiðdal. Tvær kýr felldar í Blágilsbotnum á svæði 8.
 |
|
Skrifað 01.09.09 |
|