| 3. sept. 2009 (myndir nýtt) |
|
Frábært veður á öllum veiðisvæðum. Margir stefna á hreindýraveiðar í dag. Á svæði 1 fer Eiríkur með tvo menn í taf og kú. Á svæði 2 fara: Stefán Geir með mann í tvo menn í tarfa og einn í kú, Reimar með tvo í kýr, Ómar með einn í kú, Hjörtur Kjerúlf með tvo í kýr, Alli í Klausturseli með þrjá í kýr, Þorri með þrjá í kýr, Óskar með tvo í kýr og Siggi Aðalst með tvo í kýr. Á svæði 3 fer Dagbjartur með einn í kýr, Tóti Borgars með tvo í kýr og Ólafur Örn með einn í tarf. Á svæði 4 fer Þorsteinn Aðalsteins með þrjá menn í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með þrjá menn í kýr og Friðrik með einn. Á svæði 6 fer Rúnar með einn í kú. Á svæði 7 fer Óttar með einn í kú, Guðmundur Valur með tvo í kýr, Albert með einn í kú, Stefán Gunnarss með tvo í kýr og Jónas Bjarki með tvo í tarfa. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með tvo í kýr, Sigurður Eymunds. með tvo í tarfa og Guðmundur á Þvottá með einn í kú.
|
| |
|
Jens K. Bernharðsson með sína fyrstu hreinkú fellda á svæði 2, kýrin vóg 40 kg. Leiðsögn. Óskar Bjarnason.
|
|
Vel gekk að veiða enda veðrið gott, logn og bjartviðri framundir kvöld. Þokan kom samt yfir undri kvöld. Á svæði eitt var felldur einn tarfur utan við Sandfell. Á svæði tvö voru felldar 17 kýr, flestar í Merkis og Klausturselsheiði en einnig var fellt norðvestan við Hornbrynju. Á svæði þrjú voru felldar þrjár kýr og enn tarfur við Grjótfjall. Á svæði 4 var loksins farið í hjörðina hjá Reykjum og felldar voru fimm kýr í Reykjadalnum þar voru um 50 dýr. Á svæði 6 voru felldar þrjár kýr á skörunarsvæðinu við Hornbrynju. Á svæði 7 voru felldar þrjár kýr, ein í Starmýrardal, ein í Hofsdal og tveir tarfar í Geithellnadal. Á svæði 8 voru felldar tvær kýr og tveir tarfar. Flogið var yfir svæði 9 og þar voru talin tæplega 200 dýr.
 |
|
Skrifað 03.09.09 |
|