| 4. sept 2009 (myndir nýtt) |
|
Veður gott á öllum veiðisvæðum, hæviðri og þurrt. Margir stefna á veiðar í dag. Á svæði 1 fara: Benni Óla með tvo menn, Stefán Geir með einn og Pétur í Teigi með tvo. Á svæði 2 fara eftirtaldir: Siggi Aðalsteins með tvo í kýr, Siggi Óla með einn í kýr, Snæbjörn með þrjá í kýr, Ómar með tvo í kýr, Gunnar Gutt með einn í kú, Reimar með tvo í kýr, Tóti Borgars með einn í kú og annan í tarf. Sveinn Ingimars með tvo í tarfa, Magnús Karlsson með einn í tarf. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með tvo í kýr og Stebbi Kristmanns með einn. Á svæði 4 fer Jón Egill með þrjá, Ólafur Örn með einn í kú, Björn Ingvars með tvo í kýr og Dagbjartur með einn í tarf. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr og Þorsteinn með einn. Á svæði 6 fer Agnar með einn í kú og Jóhann Steindórs með einn í kú, Á svæði 7 fer Stefán Gunnars með tvo í tarfa og einn í kú, Guðmundur á Þvottá með einn. Á svæði 8 fer Siggi á Borg með þrjá í kýr og Skúli Ben með einn. Á svæði 9 fer Halldór með þrjá í tarfa.
|
| |
|
Páll Björnsson t.h. með leiðsögumanni sínum Guðmundi á Þvottá við fallega hreinkú fellda á svæði 7.
|
|
Vel gekk að veiða á öllum svæðum. Fellar voru 35 kýr og 17 tarfar. Á svæði 1 voru felldar tvær kýr og þrír tarfar, hjarðirnar héldu sig kringum Geldingafell. Á svæði 2 voru felldir fimm tarfar og 9 kýr, fellt var á Hraungarðinum, inn við Hornbrynju og í Merkisheiði. Á svæði 3 voru felldar fjórar kýr niður af Eiríksdal utan við Grjótfjall og einn tarfu í Eiðaþinghá. Á svæði 4 voru felldar fjórar kýr í Seyðisfirði og þrjár kýr og einn tarfur í Asksnesdal. Á svæði 5 voru felldar þrjár kýr. Á svæði 6 tvær kýr á skörunarsvæðinu við Hornbrynju og á Hraungarði. Á svæði 7 voru felldar fjórar kýr og fjórir tarfar - fellt var í Hofsdal, Bragðavalladal og í Þrándarnesi. Á svæði 8 voru felldar fjórar kýr. Loks var fellt á svæði 9. Felldir voru þrír tarfar í Hálsatindi.
 | |
 | |
Sigurður Guðmundsson við hreinkú fellda á svæði 2 í Merkisheiði, vóg 42 kg. Leiðsögn: Ómar Ásgeirsson.
 | |
Smári Þórólfsson við hreinkú sína fellda á svæði 2 í Merkisheiði, vóg 38 kg. Leiðsögn: Ómar Ásgeirsson.
 |
|
Skrifað 04.09.09 |
|