| 5. sept. 2009 |
|
Nú eru aðeins 10 dagar eftir af veiðitímanum. Margir stefna á veiðar í dag. Á svæði 1 fer Siggi Aðalsteins með þrjá menn. Á svæði 2 fara: Tóti Borgars með einn í tarf og tvo í kýr, Stefán Geir með einn í kú, Benni með einn í kú, Siggi Óla með einn í kú, Össur með einn í kú, Einar Eiríks með tvo í tarfa, Bjarni Berþórs með þrjá í kýr, Eiríkur með einn í kú, Alli með tvo í kýr, Jón Egill með einn í kú, Reimar með einn í kú, Ómar með tvo í kýr, Einar Axelss með einn í kú, Magnús Karlsson með tvo í kýr, Hjörtur Kjerúlf með þrjá í kýr. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn í kú og Óttar með einn í kú. Haraldur fer með einn á sv. 4 í kýr. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í tarfa, Sigurgeir með tvo í kýr og einn í tarf og Þorsteinn með tvo í kýr. Á svæði 7 fer Helgi með tvo í tarfa og einn í kú. Á svæði 8 fer Siggi Eymunds með þrjá í kýr.
|
| |
Vel gekk að veiða. Á svæði 1 voru felldar 2 kýr og einn tarfur. Á svæði 2 voru felldar 24 kýr og þrír tarfar. Þar var fellt utan við Bessastaðavötn, í Alftavatnshæðum og út við Tindfell en einnig í Sultarrana. Á svæði 3 voru felldar tvær kýr utan við Beinageit og ein kýr á svæði 4 í Asknesdal. Einn tarfur var felldur á svæði 5 og ein kýr á Fagradal. Einn tarfur var felldur á svæði 6 í Breiðdal. Tvær kýr voru felldar á svæði 7 og einn tarfur. Á svæði 8 voru felldar þrjár kýr.
 |
|
Skrifað 05.09.09 |
|