| 6. sept. 2009 |
|
Þoka á veiðisvæðunum í morgun. Á svæði 1 og 2 fara allmargir leiðsögumenn: Eiríkur Skjaldar með tvo menn, Danni með tvo, Alli með einn, Einar Eiríks með tvo, Gunnar Gutt með tvo, Einar Axels með einn, Ómar með tvo, Jón Egill með einn, Bergur með einn, Hjörtur Kjerúlf með einn og Guðmundur Pétursson með einn. Á svæði 7 fer Rúnar með einn í kýr og Þorri með tvo. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með þrjá í kýr og Siggi á Borg með einn í tarf.
|
| |
Frekar leiðinlegt veður og ekki gekk vel að veiða. Á svæði 1voru felldir þrír tafar í Háreksstaðaheiði og tvær kýr. Á svæði 2 voru felldar 12 kýr flestar í Fellaheiði og einn tarfur í Sultarrana. Á svæði 5 var felld ein kýr í Njörvadal. Á svæð 6 var felld ein kýr. Á svæði 7 voru felldar tvær kýr og einn tarfur.
 |
|
Skrifað 06.09.09 |
|