| 7. sept. 2009 (myndir nýtt) |
|
Enn er komin þoka og rigning á hreindýraslóðum. Veður hefur heldur lagast er líða tekur á dag. Á svæði 1 fer Eiríkur með einn mann í tarf og tvo í kýr, Alli með einn mann í tarf og einn í kú, Skúli Ben. með einn í tarf og Stefán Geir með einn í tarf og annan í kú. Á svæði 2 fer Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr, Bjarni Bergþórs með tvo í kýr, Guðmundur Pétursson með þrjá í kýr, Benni Óla með einn í kú, Snæbjörn með þrjá í kýr og Reimar með einn í tarf og annan í kú. Sævar fer með einn mann í kýr á svæði 5. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með sömu menn og náðu ekki að klára í gær. Þoka og rigning er víða og þá gengur ekki vel að veiða. Menn verða þó að halda áfram þar sem mikið er enn ófellt. Nú verða menn að treysta á gott veður síðustu 7 daga veiðitímans enda er veðurspá nokkuð góð.
|
| |
|
Kristján Snorrason við hreinkú sína fellda á sv.1. Sérlega stór og falleg kýr sem vóg 54 kg. Leiðsögn: Aðalsteinn Jónsson
|
|
Erfiðlega gekk að fella vegna þoku og rigninga. Á svæði 1 var felld ein kýr og einn tarfur. Á svæði tvö voru felldar 12 kýr og 1 tarfur. Kýrnar felldar kringum Sandvatn en tarfurinn í Tungu. Þar voru ríflega 80 tarfar á leið inn í Heiðarendann, margir fallegir. Á svæði 5 voru felldar tvær kýr í Seldal. Fjórar kýr voru felldar á svæði 8.
 |
|
Skrifað 07.09.09 |
|