| 8. sept. 2009 (myndir nýtt) |
|
Enn er þokufullt á veiðislóð og nú bíða menn og vonast til að veðurspáin svíki ekki. Enn er eftir að veiða mörg dýr og ljóst er að allt þarf að ganga upp til að náist að klára á mörgum svæðum. Spáð er góðu veðri á öllum veiðisvæðum um helgina. Á svæði 1 fór Eiríkur Skjaldar með einn í tarf og tvo í kýr, á svæði 2 fer Siggi Aðalsteins með tvo menn í tarfa, Danni með þrjá í kýr, Þorri með einn í kú, Bergur með þrjá í tarfa, Einar Eiríks með einn í kú, Benni Óla með einn í kú. Ragnar Arnars með tvo í kýr, Árni Vald með tvo í kýr, Stefán Geir með einn í tarf og einn í kú. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn í kú, á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr og Sigurgeir einnig með tvo í kýr. Á svæði 6 fer Magnús Karlsson með einn í kú. Á svæði 7 fer Guðmundur Valur.
|
| |
|
Eyjólfur Þór Þórarinsson með 114 kg tarf felldan í Bótarheiði á sv. 2. Leiðsögn: Sigurður Aðalsteinsson.
|
|
Á svæði 1 voru felld tvö dýr ein kýr og einn tarfur. Á svæði tvö gekk erfiðlega að veiða fyrir þoku, fellar voru 7 kýr í Fellaheiðinni en fjórar þeirra út í Heiðarenda. Fimm tarfar voru felldir á svæði 2. Tveir í Heiðarendanum, tveir vestan við Rangárhnjúk og einn í Miðheiðarhálsi. Á svæði 5 voru felldar þrjár kýr í Seldal. Á svæði 7 var felld ein kýr.
 |
|
Skrifað 08.09.09 |
|