| 9. sept. 2009 (myndir nýtt) |
|
Þá eru aðeins 7 dagar eftir af veiðitímabilinu, enn er eftir að fella um 270 dýr af útgefnum kvóta. Veður er eins og best verður á kosið og spáin góð fyrir næstu daga á öllum svæðum.Margir leiðsögumenn á ferðinni í dag og margir veiðimenn. Á svæði 1 fara Eiríkur og Benni Óla. Á svæði 2 fara: Hafliði með einn í kú, Þorri með tvo í kýr, Danni með einn í kú, Gunnar Gutt með einn í kú, Skúli Ben með einn í kú, Óskar Bjarna með einn í kú, Guðmundur í Bessastaðagerði með einn í kú, Siggi með tvo í kýr og einn í tarf, Bjarni með þrjá í kýr, Einar Axels með tvo í kýr, Bergur með þrjá í tarfa, Ómar með einn í tarf, Jónas Bjarki með einn í tarf, Ragnar Arnars með tvo í kú og einn í tarf. Á svæði 3 fer Jón Egill með tvo í tarfa, Skúli Sveins með tvo í kýr og Stefán Kristmanns með einn í kú. Á svæði 4 fer Sævar með tvo í kýr og Ólafur Örn með tvo í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í kýr, Þorsteinn með tvo í kýr, Friðrik með einn í kú og Jón Hávarður með einn í kú. Einar Hjörleifur með tvo í kýr, Össur með einn í kú. Á svæði 6 fer Maggi Karls með einn mann í kýr. Á svæði 7 fer Guðmundur Valur með tvo menn í tarfa og Stefán Gunnars og Guðmundur á Þvottá með tvo menn í kýr. Á svæði 8 fer Sigurður Eymunds með einn mann í tarf. Halldór fer á svæði 9 með menn í kýr.
|
| |
|
Kári Valur Hjörvarsson með 44 kg kú fellda á svæði 5 í Tröllabotnum í Seldal. Fellt með 243 og 100 gr Remington kúlu á 100 m færi. Leiðsögn Sigurgeir Jóhannsson.
|
|
Veðrið var gott og vel gekk að fella. Á svæði 1 og 2 voru dýrin á fullri ferð upp í suðsuðvestanáttina. Á svæði 1 voru felldar tvær kýr og tveir tarfar í Háreksstaðaheiði. Á svæði 2 voru felldar 14 kýr, flestar á svæðinu frá Sandvatni og inn undir Álftavatnshæðir. 6 tarfar voru felldir á svæði 2 tveir í Flatarheiði, þrír í Kiðufelli og einn í Fellaheiði. Á svæði þrjú voru felldar fjórar kýr í Botnsdal. Á svæði 4 voru felldar fjórar kýr í Mjóafirði sunnaverðum. Á svæði 5 voru felldar 6 kýr í Seldal. Á svæði 6 var seinasta kýrin í kvótanum þar felld. Á svæði 7 voru felldir tveir tarfar á Öxi. Á svæði 8 var felldur einn tarfur við Almannaskarð. Á svæði 9 voru felldar 9 kýr í Heinabergi.
 | |
Veiðimaðurinn Vigfús H. Jónsson t.h. og leiðsögumaður hans Jón Hávarður Jónsson við hreinkú sem Vigfús felldi í Tröllabotnum í Seldal á sv. 5. Vopnið var cal 243 og færið uþb. 100 m. Kýrin vóg 51 kg.
 |
|
Skrifað 09.09.09 |
|