| 14. sept. 2009 |
|
Enn fara menn til veiða: Á svæði 2 fara Alli með þrjá í kýr, Eiríkur með þrjá í kýr, Gunnar Gutt með tvo í kýr, Guðmundur í Gerði með tvo menn í kýr. Benni Óla með einn í kú, Siggi Aðalsteins með þrjá menn í kýr, Jón Egill með einn í kú og annan í tarf, Sveinn Ingimars með einn í tarf. Á svæði 4 fer Dagbjartur með einn í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í kýr. Á svæði 7 fer Þorri með einn í kú. Á svæði 9 fara Stefán Gunnars með einn í kýr og þar eru einnig Gísli og Halldór.
|
| |
Mikið rok var á Héraði og víða á Fjörðunum og tafði það fyrir veiðimönnum fram undir kvöld. Á svæði 2 voru felldir tveir síðustu tarfarnir í kvótanum. Annar inn við Folavatn og hinn við Bjálfafell. Á svæði 2 voru felldar 15 kýr flestar á svæðinu við Laugará og Hölkná. Á svæði 3 var felld ein kýr í Reykjasúlu, á svæði 5 voru felldar tvær kýr fyrir ofan Stóru Breiðuvík, á svæði 7 var felld ein kýr. Á svæði 9 voru felld 8 dýr.
 |
|
Skrifað 14.09.09 |
|