| 15. sept. 2009 (Lokadagur) |
|
Þá er runninn upp síðasti dagur veiðitímabilsins. Vel hefur gengið að veiða síðustu daga og staðan er sú að sennilega verður ekki mikið eftir að veiða þegar allt kemur til alls. Þrátt fyrir erfitt veiðitímabil veðurfarslega séð. Nú er verið að veiða á örfáum svæðum. Á svæði 2, á svæði 4, á svæði 7, á svæði 8 og á svæði 9.
|
| |
Þá er veiðitímabilinu lokið. Felldar voru tvær síðustu kýrnar á svæði 2, ein kýr á svæði 4 í Mjóafirði, tvær kýr á svæði 7, sex kýr og tveir tarfar á svæði 9. Búið er að fella megnið af kvótanum.
 |
|
Skrifað 15.09.09 |
|