| 16. júlí 2010 |
|
Fáir á veiðum í dag. Stefán Gunnars tilkynnti veiðar með seinni veiðimanni sínum á sv. 7 síðan í gær - hann náði einnig fallegum tarfi í Búlandsdal þar sem voru um 40 tarfar í nokkrum smáhópum. Páll Leifss fór með veiðimann á sv. 5 og felldi hann í Áreyjardal inn af Reyðarfirði. Halldór Guðmundsson fór með þrjár skyttur á svæði 9 og felldu þeir þrjá tarfa á Borgarhafnarheiði úr hópi sex tarfa sem þar var.. Nú er norðan eða norðaustlæg vindátt á Austurlandi og þokuloft og úrkoma á Héraði. Bjartara á Suðurfjörðum og þar halda menn trúlega til veiða á morgun. Nú er þá búið að fell 12 tarfa.
|
| |
|
|
Skrifað 16.07.10 |
|