| 22. júlí 2010(myndir) |
|
Bjart og fallegt veður hæg suðlæg átt á Héraði. Nokkrir stefna til veiða: Reimar fer með einn mann á sv 2, Ómar með einn mann, Einar Hjörleifur með tvo menn. Sævar fer á svæði 5 með tvo menn, Albert fer með veiðmann á svæði 7. Siggi á Borg ætlaði með einn á sv.9. Veiðimaður með Reimari felldi á Fljótsdalsheiðinni snemma í morgun, veiðimaður með Ómari felldi út tólf tarfa hóp í Hornbrynjuslakka. Veiðimenn með Einari Hjörleifi felldu við Gilsárvötnin síðdegis og undir kvöld. Veiðimennirnir með Sævari á svæði 5 felldu í Hellisfirði tvo fallega tarfa. Þorri Mangússon fór með tvo menn í gærkvöldi og felldu þeir tarfa í Breiðdalnum í Seldal á sv 6.
|
| |
Axel Jóhann Ágústsson veiðimaður ásamt Stellu dóttur sinni við tarf sinn sem felldur var í Hellisfirði á svæði 5. Tarfurinn var 89 kg. Leiðsögumaður var Sævar Guðjónsson.
 | |
Gunnlaugur Hafsteinsson (með bláu húfuna) við tarf sem hann felldi í Hellisfirði og vóg hann 85 kg. Sérlega falleg krúna. Leiðsögumaður: Sævar Guðjónsson
 |
|
Skrifað 22.07.10 |
|