| 25. júlí 2010 (myndir) |
|
Ómar fór með veiðimann á svæði 2 og felldu þeir úr 17 tarfa hópi við Gilsárvötnin snemma um morguninn og Guðmundur Pétursson fór einnig með mann á svæði 2 og felldu þeir úr sama hópnum fyrir hádegið. Danni fór með sinn mann í 80 tarfa hóp í Urgnum og felldi sá einnig um hádegið. Jón Hávarður fór með tvær skyttur á svæði 2 undir kvöldið og felldu þeir tarfa í Fellunum. Veiðimenn með Stebba Kristm. fundu loks tarfana á svæði 4 og felldu þeir tvo fallega tarfa að sunnanverðu. Jónas Bjarki fór með einn mann á svæði 7 og felldu þeir í Veturhúsadal. Guðmundur Valur fór með einn mann í tarf inn á Hraun á sv. 7 og felldi hann tarf undir kvöld.
|
| |
Hreiðar Gunnlaugsson við tarf sinn sem hann felldi á svæði 2, úr 80 tarfa hópi, utan í Urgnum á Fljótsdalsheiði. Með honum á myndinni eru Gunnlaugur sonur hans og leiðsögumaðurinn Aðalsteinn Aðalst. 78. ára. (Danni á Vaðbrekku).Vopnið er Bikal 30-06 og kúla 165 gr. Accubond. Færið var 127 metrara.
 | |
|
Jón Einarsson við tarf felldan á sv 7 í Veturhúsadal, vigtaði 91 kg, felldur með 270 Win. Leiðsögn Jónas Bjarki Björnsson.
|
|
 |
|
Skrifað 26.07.10 |
|