| • Að sækja um hreindýraveiðileyfi. |
|
Umhverfisstofnunar auglýsir til sölu leyfi til hreindýraveiða á komandi veiðitíma, á tímabilinu 1. ágúst til 15. september 2010. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2010. Rafrænar umsóknir á skilavef veiðikorta og umsóknir í tölvupósti berast fyrir kl. 24:00 og skriflegar umsóknir að hafa póststimpil fyrir 15.02.10. Við fyrstu úthlutun geta veiðimenn sótt um tvö leyfi, ein aðalumsókn og önnur varaumsókn. Dregið verður úr innsendum umsóknum ef umsóknir eru fleiri en leyfi.
|
| |
|
Á veiðum.
|
|
Verð veiðileyfa eftir svæðum er sem hér segir: Öðlast gildi er auglýsing frá Umhverfisráðuneyti hefur birst í Stjórnartíðindum.| Veiðisvæði | Tarfur | Kýr | | 1 og 2 | 125.000 | 70.000 | | 3,4,5,6,7,8 og 9 | 90.000 | 50.000 |
|
|
|
|
|
|
Ekki er heimilt að fella hreinkálfa tímabilið 2010
Samkvæmt reglugerð þá skal greiða 25% af gjaldinu fyrir 1. apríl og 75% fyrir 1. júlí. | |
Rafrænar umsóknir Sérstök athygli skal vakin á því að tekið er á móti umsóknum á skilavef veiðistjórnunarsviðs um leið og veiðiskýrslu síðasta árs er skilað og sótt er um nýtt veiðikort og eru menn hvattir til að sækja þannig um. Allir handhafar veiðikorta fá send lykilorð fyrir skilavef á næstu dögum. Byrjað er að senda út lykilorð með tölvupósti. Ekki er tekið á móti umsóknum í síma.
Skilavefur fyrir veiðiskýrslur og umsóknir um hreindýraveiðileyfi: www.ust.is/Veidistjornun/Veidikort/
| |
Skriflegar umsóknir. Skriflegar umsóknir sendist til Umhverfisstofnunar, pósthólf 174, 700 Egilsstöðum. Umsækjendur sendi inn nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer og númer á veiðikorti. Einnig komi fram óskir um veiðisvæði og kyn dýrs. Hægt er að sækja um veiðileyfi með tölvupósti netfang:hreindyr@hreindyr.is Ekki er tekið á móti umsóknum í síma. Nánari upplýsingar gefur starfsmaður Umhverfisstofnunar á netfanginu hreindyr@ hreindyr.is eða í síma 471-2964 mánudaga til föstudaga milli kl. 9:00 og 12:00 ---------------------------------------------- |
|
|
Tenglar sem varða efnið: www.veidistjori.is/fmi/iwp/cgi?-db=Veidikort&-loadframes |
|